22.5.2009 | 08:07
Er þetta ekki hústökumál??
Mér er bara spurn hvort að þetta flokkist ekki sem hústökumál og megi því forseti alþingis siga lögreglunni á framsóknarfólk ef að þau færa sig ekki??
Það væri bara fyndið að sjá lögregluna bera Sigmund út í fósturstellingu, eldrauðann í framan eins og reitt smábarn sem fær ekki sínu framgengt. Hægt væri að toppa það ef Sif væri svo öll úfin og rifin eftir átök við yfirvaldið og Eygló að hella mjólk í augu Birkis Jóns eftir piparúðann. En þetta er bara svona mynd sem ég sé í fyrir mér og væri til í að sjá í fjölmiðlum landsins.
Það á ekki að gefa þeim möguleika á að haga sér eins og frek smábörn en ef að þau ætla að gera það á annað borð að veita þeim flengingu í samræmi við það.
Ef að ég væri forseti okkar hæstvirta alþingis þá myndi ég alla vega bara hringja á lögregluna og rumpa þessu máli af. Burtu með þetta hústökufólk og hananú!!
Þeir sitja sem fastast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mér finnst eiginlega óvirðing við smábörnin að líkja þessum vitl.... við þau !! Smábörn eru yfirleitt mun skynsamari og örugglega auðveldari viðureignar !!
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 22.5.2009 kl. 12:44
Hehe, jú sennilegast er þetta nú rétt hjá þér. Ég verð að byðjast afsökunar við öll þau börn sem lesa þetta ... Það var rangt af mér líkja þessu hústökufólki við ykkur.
Einar Sveinn Ragnarsson, 22.5.2009 kl. 15:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.