23.5.2009 | 10:04
Er fjöldi skilnaða þá sambærilegur?
Í kreppunni á ég ekki von á því að fólk sé mikið í því að kaupa sér mikið að fasteignum nema þá nauðbeygt. Spurning um að kanna fjölda hjónaskilnaða síðan að kreppan skall á og bera þá saman við fjölda þinglýstra kaupsamninga. Ég gæti vel trúað að þetta haldist í hendur því miður.
Svo er náttúrulega alltaf sá möguleiki fyrir hendi að þarna séu erlendir aðilar að hasla sér völl með því að kaupa eignir af fólki sem er á hvínandi kúpunni og búið að lækka fasteignir sínar umtalsvert. Svo hefur reyndar fólksflótti frá Íslandi aukist til muna og fólk kannski vill síður sitja uppi með óseldar eignir á Íslandi í byrjun nýs lífs í nýju landi.
Samt sem áður þá læðist einhvern vegin alltaf að mér sá grunur að þarna séu fasteignasalar jafnvel sjálfir á ferð í kaupum og sölum sín á milli. Leiðinleg hugsun en ég fæ þetta alltaf á tilfinninguna.
Þokkaleg fasteignasala á höfuðborgarsvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.