Jább, 15 mínútna námskeið bara?

Jamms það er best að redda þessu og kenna starfsmönnum íslenskuna.  Gott mál að fólk sem býr á Íslandi að læra íslenskuna og enn betra að bjóða upp á íslenskukennslu en ég held samt að okkar ágæta mál verði seint ráðandi tungumál í stærri fyrirtækjum hér á landi.  Sérstaklega ef þessi fyrirtæki eru í útrás og í miklum viðskiptum erlendis.

"Fram komu ýmsar hugmyndir um leiðir til að treysta íslenskuna í sessi. Fyrirtæki geta t.d. markað sér málstefnu. Þau geta lagt meiri áherslu á að bjóða útlendum starfsmönnum upp á íslenskukennslu og þau geta stuðlað að því að íslenska verði ráðandi tungumál í starfsstöðvum hér á landi."

Best er að ímynda sér þetta á ensku með sterkum íslenskum hreim:

"nei herra Geits, við getum ekki hýst skráarsöfnin fyrir PínuMjúkt því að það er svo mikið á útlensku. Það er bara ekki stefna okkar hérna á Íslandi."

Ísland. Best í heimi.

Góðar stundir


mbl.is Treysta þarf sess íslenskunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband